Mamma, má ég koma heim?
23. nóvember 2006 klukkan 21:21
Jæja.
Ég hef tekið þá merkilegu og djörfu, en þó fyrirsjáanlegu og hversdagslegu ákvörðun um að koma heim til Íslands og klára gráðuna mína, við Bifröst.
Upphaflega var ætlunin að vera hér lengur, jafnvel mun lengur, til þess að ná mjög svo góðum tökum á kínverskunni. Ég sé það hins vegar núna að rökréttast er að klára gráðuna mína fyrst, því án hennar nýtist kínverskukunnátta ein og sér ekki neitt að ráði. Svona tungumálanám er einnig langtímamarkmið. Ég hef fengið ógurlega góða kynningu á landinu, þjóðinni og málinu. Nú hef ég innsýn í hugsunarháttinn hérna, daglegt líf, staðarhætti og tungumálið. Þessi dvöl hefur gefið mér margt, þá einna helst betri innsýn í það hvað við höfum það skítsæmilegt á Íslandi.
Ég er búinn að kaupa flugmiða til Lundúna 16. desember og mun dvelja þar í tímajöfnun hjá litlu systur minni, bankamanneskjunni, til 19. desember, en þá held ég heim á leið til Íslands.
Ég hef í hyggju að ferðast töluvert áður en ég kem heim.
Ég mun að sjálfsögðu leyfa ykkur að fylgjast vel með. Mig langar norður.
Hlutir sem fara í taugarnar á mér:
Mengun
Sem afleiðing framfara. Hún er víst af hinu illa en við sem Vesturlandabúar getum sosum lítið sagt.
Ruddaskapur
Sem afleiðing tilvistarleysis persónulegs rýmis.
Hráki
Sem afleiðing tilvistarleysis persónulegs rýmis.
Klóaksfýla
Sem afleiðing tilvistarleysis persónulegs rýmis.
Kuldi
Sem kemur aftan að manni og þrykkir sér inn. Í beinin. Brrrr...
Hiti
Sem umlykur mann sem heitur elskhugi, neitar svo að sleppa og bræðir hjarta manns ásamt öllu öðru.
Raki
Sem eykur hitann á heitum dögum og herðir kuldann á köldum dögum.
Störur
Sem fólk notast við til að virða mann fyrir sér.
Stööööööörur
Sem fólk notast við til að virða sálina manns fyrir sér.
Yfirmáta kurteisi
Sem afleiðing tilvistar meints mikilfengleika útlendinga.
Barnalegheit
Sem afleiðing væntinga, hormóna og mötunar.
Betl
Sem afleiðing nýfrjálshyggjustefnu í stærsta sýndarkommúnistaríki heims.
Hár talandi
Sem afleiðing fjarveru raddtækniþjálfunar og þindarbeitingar
Fjarvera hátæknilegs bankakerfis
Sem afleiðing viðnáms og mótstöðu
Hlutir sem ég fíla nokkuð mikið:
Kurteisi
Þó hún geti orðið of mikil stundum er alltaf gaman þegar fólk tekur á móti manni með bros á vör.
Hreinskilni
,,Þú ert eins og David Beckham" eða ,,Bólan þín hefur stækkað".
Hjálpsemi eins og maður hefur aldrei kynnst
Hvert einasta vandamál sem ég hef rekist á hérna hefur verið leyst með aðstoð góðs vinar. Þeir eru margir hér.
Stolt
Þjóðin er stolt. Flestir hérna bera höfuðið hátt. Á Vesturlöndum er til fólk sem getur ekki borið höfuðið hátt vegna þess að það á ryðgaðan bíl.
Skyldurækni
Kínverjar hafa sterka tilfinningu fyrir því hverjar skyldur þeirra eru og rækja þær skyldur einstaklega vel.
Dugnaður
Sjáið byggingu rifna niður, svæðið hreinsað og nýja byggingu rísa á örskömmum tíma.
Fjölbreytt matargerð
Nei, þetta er ekki allt eins á bragðið.
Matarprjónar
Hvenær hefur ykkur liðið kúl yfir að geta náð einni baun upp með gaffli?
Verðlag
Kína: Himnaríki blanka Vesturlandabúans.
Aðdáun
Kína: Himnaríki ljóta Vesturlandabúans.
Djöfull er hlíðin smart,
Kiddi
Kiddi í Kína
Kveðja Töddson